Ráðstefna 18. júní: Vald og lýðræði á Íslandi – 100 árum síðar
Í Háskóla Íslands verður 100 ára afmæli kosningaréttar íslenskra kvenna minnst með ráðstefnunni, Vald og lýðræði á Íslandi – 100 árum síðar, þann 18. júní nk.
Meginþema ráðstefnunnar er margbreytileiki, þátttaka og lýðræðishugmyndir í íslensku samfélagi nú 100 árum eftir að kosningaréttur varð almennur á Íslandi.Í tengslum við ráðstefnuna verður Dr. Önnu Guðrúnu Jónasdóttur, prófessor í stjórnmála- og kynjafræði við Háskólann í Örebro veitt heiðursdoktorsnafnbót og verður hún fyrsti heiðursdoktorinn við Stjórnmálafræðideild HÍ.
Dagskrá ráðstefnunnar er þríþætt: vinnustofur fræðimanna, hátíðardagskrá með framsöguerindum og pallborðsumræðum, og veiting heiðursdoktorsnafnbótar.
Hátíðardagskráin fer fram í Hátíðasal HÍ og hefst kl. 13:00. Dagskráin fer fram á íslensku og ensku. Aðgangur er ókeypis – öll velkomin.
Hátíðarsdagskrá 13:00 – 17:00:
Kl. 13:00-15:00 Vald og lýðræði 100 árum síðar
– Reflecting on the Representation of Women in Politics, Dr. Sarah
Childs, prófessor í stjórnmálafræði við Háskólann í Bristol
– Men, Women and the Suffrage in Iceland, Dr. Sigríður Dúna Kristmundsdóttir, prófessor í mannfræði við Háskóla Íslands
– Margbreytileiki, þátttaka og lýðræðishugmyndir 100 árum síðar:
Pallborð með þátttakendum rannsóknarverkefnisins Vald og lýðræði
– Kl. 15:00 – Kaffihlé og veitingar
Kl. 15:30-17:00 Veiting doktorsnafnbótar
– Tónlistaratriði: kvennakórinn Vox feminae
– Veiting doktorsnafnbótar: Dr. Anna Guðrún Jónasdóttir
– From Iceland to International Love Studies, Dr. Anna Guðrún Jónasdóttir
– Kl. 17:00 – Veitingar